Fréttir

Samningafundur um makríl í London

3.9.2012

Í dag fóru fram í London viðræður milli Íslands, Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins um makríl. Fundurinn var að hluta sameiginlegur með aðild allra  fjögurra en að hluta í formi þríhliða viðræðna Íslands, Noregs og Evrópusambandsins og hins vegar Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins.

Í lok fundarins komu viðræðuaðilar sér saman um eftirfarandi yfirlýsingu:

1)   Viðræður um kvótaskiptingu leiddu ekki til niðurstöðu.  Of mikið ber enn á milli viðræðuaðila.

2)   Aðilar eru sammála um að samningsumleitanir haldi áfram á reglubundnum haustfundi strandríkjanna.

3)   Viðræðuaðilarnir eru sammála um mikilvægi þess að virða vísindalega ráðgjöf.

Fréttina má einnig sjá á ensku síðunni.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. september 2012.

 


Hér eru fréttir og tilkynningar frá nýju atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti .

Eldri fréttir þeirra þriggja ráðuneyta sem sameinuðust í nýju ráðuneyti eru áfram aðgengilegar undir eldri fréttum hér á þessari síðu.