Styrkir og sjóðir

Tryggingasjóður innistæðueigenda og fjárfesta

Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta (TIF) er sjálfseignarstofnun sem starfar skv. lögum nr. 98/1999 með síðari breytingum.

Lesa meira

Verkefnasjóður sjávarútvegsins

Almenn deild veitir styrki til verk­efna sem falla undir verkefnasvið og eru á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar, fiskveiði­eftirlits Fiskistofu og Matvælastofnunar, Veiðimálastofnunar, Matís ohf. sem og Rannsóknasjóðs um aukið verðmæti sjávarfangs (AVS-rannsóknasjóðs).

Lesa meira

Rannsóknasjóður í sjávarútvegi

AVS er rannsóknasjóður í sjávarútvegi sem starfar á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.

AVS rannsóknasjóður veitir styrki til rannsóknaverkefna, sem auka verðmæti sjávarfangs.

Lesa meira

Frumkvöðlar og fyrirtæki

Á vegum ráðuneytisins er frumkvöðlum og fyrirtækjum veittur margvíslegur stuðningur. Nýsköpunarmiðstöð Íslands veitir upplýsingar og leiðsögn sem er sérstaklega sniðin að þörfum frumkvöðla og lítilla fyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð er með skrifstofur í Reykjavík, á Akureyri, Egilsstöðum, Húsavík, Höfn, Ísafirði, Sauðárkróki og Vestmannaeyjum en auðveldast er að kynna sér starfsemina á heimsíðunni og hafa svo samband ráðgjafa með tölvupósti

Lesa meira