Skipurit
Skipurit
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið skiptist í 4 fagskrifstofur og 3 stoðskrifstofur sem eru ábyrgar fyrir daglegum rekstri málaflokka, ferlum, þjónustu, upplýsingagjöf og öðru sem undir þær heyra.

Skipuritið er einnig aðgengilegt sem PDF skrá hér að neðan:
Skipurit atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins
Myndin að ofan sýnir fagskrifstofurnar fjórar sem eru:
- Skrifstofa atvinnuþróunar
- Skrifstofa sjálfbærrar nýtingar
- Skrifstofa viðskiptahátta
- Skrifstofa afurða
Stoðskrifstofurnar þrjár eru:
- Skrifstofa stefnumótunar og samhæfingar
- Skrifstofa fjárlaga og árangursstjórnunar
- Skrifstofa innri þjónustu og rekstrar
Æðsti yfirmaður ráðuneytisins er atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra. Æðsti embættismaður ráðuneytisins er ráðuneytisstjóri, sem stýrir daglegum rekstri þess.
