Fjármálalegar upplýsingar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
Heildargjöld atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins samkvæmt fjárlögum 2013 eru 31,3 milljarðar króna eða 6,3% af heildargjöldum ráðuneyta.
Útgjaldaheimildir A-hluta ríkissjóðs eru 583 milljarðar króna í fjárlögum fyrir árið 2013 og af þeim eru útgjaldaheimildir ráðuneyta 494 milljarðar.
Málefni
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fer m.a. með mál er varða:
- Atvinnuþróun og nýsköpun
- Byggðamál
- Ferðaþjónustu
- Hitaveitur
- Iðnað
- Jarðrænar auðlindir
- Orkumál
- Fjármálamarkaðinn
- Félagarétt, endurskoðendur og ársreikninga
- Almenn viðskiptamál
- Sjávarútveg
- Landbúnað
- Fiskeldi
- Matvæli og matvælaöryggi
Skipting fjárveitingar - í milljónum króna
Fjárveitingar til helstu verkefna atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins samkvæmt fjárlögum 2013 eru eftirfarandi:
| Ráðuneyti | 1.390 | 4,4% |
| Orkumál | 2.195 | 7,0% |
| Framlög og sjóðir í þágu sjávarútvegs og landbúnaðar | 2.339 | 7,5% |
| Framlög og sjóðir í þágu landbúnaðar og dreifbýlis | 3.475 | 11,1% |
| Eftirlitsstofnanir | 4.309 | 13,8% |
| Atvinnuþróun og nýsköpun | 6.126 | 19,6% |
| Greiðslur vegna búvöruframleiðslu | 11.454 | 36,6% |
| Samtals | 31.287 | 100% |
Ítarefni
- Stjónrsýslulög nr. 27/1993, althingi.is
- Lög nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands, althingi.is
- Forsetaúrskurður nr. 100/2012 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, stjornartidindi.is
- Fjárlög.is - greinargerðir og ræður - fjárlagafrumvarp - 3. gjöld A-hluta - skipting eftir ráðuneytum - 04. atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
- Fjárlög.is - greinargerðir og ræður - umfjöllun Alþingis um fjárlagafrumvarp - breytingar Alþingis - 6. fjármál ríkisaðila í A-hluta (sundurliðun 2) - atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
